top of page

heima

ELDSMIÐJAN Í LÆKJARBOTNUM

Í Lækjarbotnum ofan við Lögbergbrekku er starfræktur Waldorfsskóli og Leiksskóli. Nánar tiltekið í Seldal við rætur Selfjalls. Nýja Eldsmiðja skólans var tekinn í notkun síðla árs 2010, en fram að því var notast við gamlan hænsakofa sem breytt hafði verið í agnarsmáa smiðju árið 2006. Bygging smiðjunnar var grettistak fyrir litla skólann og sómir hún sér einkar vel í dalnum, umkringd trjágróðri og friðsæld. Smiðjan er sérlega skemmtilega útfærð og með góða yfirsýn fyrir leiðbeinandann og afbragðs vinnuaðstöðu fyrir nemendur.

bottom of page